Pústþjónusta BJB („BJB“) var stofnuð árið 1979 af Birni Jóhanni Björnssyni í Grófinni í Keflavík. Björn starfið einn flesta mánuði ársins fyrstu árin en á vorin kom Sigurður Jóhann Sigurðsson, betur þekktur sem Siggi sem enn starfar hjá félaginu í dag, honum til aðstoðar. Árið 1983 flutti BJB sig að Trönuhrauni 2 í Hafnarfirði þar sem Björn eða Bjössi eins og hann er almennt kallaður, ásamt Sigga áttu eftir að vinna sig inn í huga og hjörtu margra með pústreddingum og sérsmíði. Nokkrum árum seinna flutti félagið starfsemi sína aftur og nú að Helluhrauni í helmingi stærra húsnæði. Í framhaldinu jókst starfsmannafjöldi félagsins jafnt og þétt. Í kringum 1990 hóf BJB að flytja inn pústkerfi frá Bretlandi en fram til þess hafði allt pústefni verið keypt innanlands. Starfsemin jókst mikið á árunum 1990-1999 með aukinni þörf fyrir stærra húsnæði en árið 1999 flutti félagið svo aftur starfsemi sína í hluta núverandi húsnæðis að Flatahrauni 7 í Hafnarfirði. Í framhaldinu var BJB orðið eitt stærsta og fullkomnasta pústverkstæði landsins þar sem smíðað var pústkerfi í flest allar gerðir ökutækja. Árið 2002 hófust svo framkvæmdir við loka áfanga hússins að Flatahrauni 7 þegar byggt var við húsið meðfram Flatahrauninu. Að þeim áfanga loknum var heildarstærð hússins orðið nærri 1000 fm. sem þá hýsti verkstæði og lager BJB á neðri hæð hússins en efri hæð hússins var þá ónýtt.
Country: Iceland (IS)
Platform: Custom Cart
Technologies used: Google Adsense, Google Analytics, Google Tag Manager
Contact page: https://bjb.is/contact-us
Signup for Free. No Credit Card required.Suitable for marketing agencies, app developers and new business ideas.
No credit card required.